About this Event
Jallabina, arabískt dans workshop, Arabian Night Danspartý!
Miðvikudagur 15. maí - Arabískt danstækni workshop með Lenu Helt 19 - 20:30
Fimmtudagur 16. maí - Arabískt dans kóreógrafíu workshop með Lenu Helt 19:00 - 21:00
Föstudagur 17. maí - Arabian Night Danspartý á Gauknum (sér event)
Laugardagur 18. maí - Jallabina/Zumba partý með gestakennurum 10:30 - 12:30
Verð:
Workshop með Lenu Helt
World Class meðlimir VIP pakki í bæði workshop 5.500, stakt skipti 2.900
Aðrir greiða 8.000 fyrir bæði workshop, stakt skipti 4.200
Jallabina/Zumba partý
World Class meðlimir 2.900 kr
Aðrir 4.200
Aðgangseyrir í Arabian Night Danspartý á Gauknum 2.900 kr og er opinn viðburður: https://fb.me/e/6ELQY57VA
Við verðum þess aðnjótandi að fá til okkar stofnendur Jallabina Workout til Íslands dagana 15. - 19. maí, mæðgurnar Lena Helt og Amina El Mallah. Í tilefni þess stofnum við til arabískra dansdaga í World Class Laugum þar sem kostur er að fara dýpra í Jallabina og í seiðandi heim arabískrar tónlistar og dans. Lena Helt er masterteacher innan magadans senunnar á heimsvísu og hefur verið að kenna og reka sitt eigin dans og fitness stúdíó í yfir 20 ár, í Stokkhólmi. Dóttir hennar Amina er svo reynslubolti innan Zumba ásamt því að stofna Jallabina prógramið með móður sinni en Amina hefur farið um allan heim á stórar ráðstefnur að kenna bæði Zumba og Jallabina. Lena Helt mun stýra tveimur workshoppum 15. og 16. maí í sal 2 í Laugum. 15. maí verður farið yfir allskyns tækni og tilvalið fyrir þá sem hafa verið að stunda bæði Jallabina eða annarskonar magadans. Þann 16. maí mun Lena stýra kóreógrafíu og þá fáum við meira flæði og að dansa um gólf og reyna aðeins á samhæfinguna.
17. maí munum við svo koma saman á Gauknum í miðbæ Reykjavíkur ásamt fríðu föruneyti af allskonar dönsurum, bæði áhugafólki og fagaðilum í bransanum innanlands sem og utanlands og halda stóra arabíska dansveislu. Ekki missa af því!
Vikan endar svo á Jallabina/Zumba partýi í Laugum sal 4 laugardaginn 18. maí þar sem við munum svitna rækilega með bæði Jallabina og Zumba. Sérstakir gestir þar verða einmitt Amina, Lena en einnig Emma Ahlex og Mohammed Ragragui frá Svíþjóð.
Skráning í Workshop með Lenu Helt 15. og 16. maí hér (ath. þið getið hakað við báðar dagsetningar eða aðra hvora): https://forms.gle/PZevvo8DYdWmv6Gq5
Skráning í Jallabina/Zumba partý hér: https://forms.gle/NHgQBotgUBLfWAr58
Við tökum við pening á staðnum eða millifærslu á Friðrik Agna, reiknings upplýsingar í skráningarforminu.
Hlökkum til að dansa og njóta með ykkur!
Dance Styles
Zouk (100%)
Pricing
Arabian Night Danspartý:ISK 2,900.00
Jallabina/Zumba partý World Class meðlimir:ISK 2,900.00
Workshop með Lenu Helt stakt skipti:ISK 2,900.00
Jallabina/Zumba partý aðrir:ISK 4,200.00
Workshop með Lenu Helt aðrir greiða stakt skipti:ISK 4,200.00
Workshop með Lenu Helt VIP pakki:ISK 5,500.00
Workshop með Lenu Helt aðrir greiða bæði workshop:ISK 8,000.00
Organizer
F
Friðrik Agni Árnason
H
Happy Studio
R
