About this Event

BÁS, loftslagsmarkaður og þakbar, opnar með pomp og prakt laugardaginn 29. Júní! Þemað á opnunardeginum er einfaldlega; Flóamarkaður. Hreinsum úr geymslunum, verslum notað og gefum gömlum hlutum nýtt líf! ATH. allir básar eru nú fullbókaðir. Á meðan markaðnum stendur verður einnig lífleg dagskrá í gangi á þakbarnum. Kvörn + 10 sopar verða með veitingasölu fyrir gesti og gangandi. Tanja Huld Levý textílhönnuður býður upp á fría kennslu í prenti og stenslagerð, frá kl 14-16. Komdu með gömul föt og stenslaðu á þau! Þá mun DJ-öfull, eða Unnsteinn Manuel, þeyta skífum og Salsa Iceland býður í salsaball frá kl 16-18. Klukkan 16:00 hefst létt byrjendakennsla í salsa, og svo dunar dansinn undir berum himni í bílastæðahúsinu. ... BÁS er loftslagsmarkaður sem verður opinn annan hvern laugardag í sumar, frá og með 29. júní. Efstu hæð bílastæðahússins við Hverfisgötu 20 verður breytt í lifandi markaðssvæði og þakbar. Bílastæðin verða að markaðsbásum þar sem fjölbreytt og umhverfisvæn söludagskrá fer fram ásamt ýmsum öðrum uppákomum til vitundarvakningar um loftslagsbreytingar. Verkefninu er ætlað að vekja athygli á þeim áhrifum sem óhóflegar neysluvenjur hafa á umhverfið. Borgarbúar eru hvattir til að minnka sóun og endurnýta í sínu nærumhverfi.

Dance Styles

Salsa (100%)

Organizer

T

Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir

H

Hulda Ragnhildur Hjálmarsdóttir

S

Salsa Iceland

E

Edda Blöndal

A

Andri Hrafn Unnarson

B

BÁS

K

Kvörn

Ó

Ólafur Daði Eggertsson

S

Sigrún Guðmundsdóttir