About this Event
Kr. 7.500.-
4 skipti (mið, lau, mið, lau)
BARA GAMAN!!!!!!!
Til að skrá: sendið tölvupóst: [email protected] með upplýsingum um gsm síma líka.
Fáðu smjörþefinn af því hvernig er að dansa socialdans, að dansa sér til ÁNÆGJU OG YNDISAUKA, að dansa við dansfélaga þar sem annar aðilinn stýrir og hinn fylgir. Socialpardans (par=tveir aðilar að dansa saman, sama hvaða aldur, kyn eða félagslegu tengsl eru á milli) er DÁSAMLEGT félagslegt fyrirbæri þar sem einstök stemning myndast við það sem mætti kalla samræður án orða.
Staðreyndin er sú að socialdanssamfélagið hér á landi (og reyndar í flestum löndum) er ansi hetero og mig langar að breyta því! Því held ég þetta námskeið.
ATHUGIÐ! TIL AÐ SKRÁ SIG Á NÁMSKEIÐIÐ ÞARF AÐ SENDA TÖLVUPÓST (sjá hér fyrir neðan) AÐ SKRÁ HÉR "GOING" EÐA "MAYBE" Á EVENTINN GILDIR EKKI SEM SKRÁNING. ENDILEGA SENDIÐ TÖLVUPÓST ([email protected]) FYRIR ÞRIÐJUDAGINN 28. JANÚAR TIL AÐ SKRÁ YKKUR.
Varðandi námskeiðið: yfirleitt eru byrjendanámskeið lengri en bara fjögur skipti en í samráði við áhugasama þátttakendur ákváðum við að hafa styttra prufunámskeið. Ef áhugi verður fyrir áframhaldandi tímum mæti ég þeim áhuga svo SANNARLEGA.
KOMDU OG PRÓFAÐU!
HVAR? Danssalur í Engihjalla 8, 200 Kóp (sama bygging og verslunin Iceland. INNGANGUR milli Brynjuíss og Viking Kebab).
HVENÆR: 4 skipti, 60 mín skiptið, mið 5. feb kl. 19:00-20:00, lau 8. feb kl. 17:00-18:00, mið 12. feb og lau 15. feb.
HVERNIG TEK ÉG ÞÁTT? Sendir mér e-mail: [email protected] með fullu nafni, gsm síma og svo tvennt sem þú ræður en væri til í það: hvaða persónufornafn þú notar og hvort þú viljir dansa hlutverk fylgjanda, stýranda eða læra bæði. :D (Þarf að sjá aðeins eftir skráningar hvernig það pússlast saman, en hugsun mín er sú að við bindum okkur (augljóslega) ekkert við hin hefðbundnu kynjahlutverk).
HVAÐ KOSTAR? AÐEINS 7500.- (held verðinu mjööööög lágu fyrir ykkur þetta eina námskeið, og þarf að LÁGMARKI 10 nemendur til að halda námskeiðið en vonandi koma fleiri).
Ef þú hefur rétt á niðurgreiðslu frá stéttarfélagi geturðu auðvitað fengið kvittun frá mér. :D
Dance Styles
Bachata (100%)
Organizer
B
