About this Event
Opið hús fyrir allar konur sem vilja koma og prófa suðræn dansspor eins og t.d. Merengue, Bóleró, Bachata og fleira.
Námskeiðið Suðrænt og sjálfseflandi fer fljótt af stað og í þessum prufutíma geturðu fengið nasaþefinn af því hvað er boðið uppá á því námskeiði. Einnig færðu tilfinningu fyrir því hvernig það er að stunda þessa suðrænu dansa og leyfa fjörugu og tilfinningaríku latíntónlistinni að hafa áhrif á líkama og sál, óháð námskeiðinu SogS.
Pössum uppá persónulegar sóttvarnir, komum með eigin vatnsbrúsa, sprittum hendur VEL við innkomu, söfnumst ekki saman í innganginum heldur komum strax inn, förum úr skóm og útá dansgólf.
HAFIÐ SAMBAND EF ÞIÐ HAFIÐ SPURNINGAR! En verið velkomnar, ungar sem aldnar, reynslumiklar eða algjörlega án allrar dansreynslu.
Staðsetning: í dansstúdíói Engihjalla 8, inngangur MILLI VikingKebab og Brynjuíss (sama bygging og verslunin Iceland).
Dance Styles
Bachata (100%)
Organizer
B
