About this Event
SalsaIceland býður upp á ókeypis upprifjunartíma fyrir nemendur til að koma sér í gírinn fyrir námskeið annarinnar.
Sunnudaginn 14. janúar tökum við á móti nemendum sem vilja rifja upp sporin af 2. stiginu kl. 17:00-18:00, og svo rifjum við upp sporin á byrjendanámskeiðinu í salsa kl. 18:00-19:00.
Við biðjum þátttakendur helst að mæta með félaga til að dansa við í tímanum. Þeir sem finna sér ekki félaga eru velkomnir, við munum rótera og gera það besta úr aðstæðum. Það er líka sniðugt að nýta þennan viðburð til að auglýsa eftir félaga, þannig hjálpumst við að við að halda kynjahlutföllunum jöfnum.
Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram í tímana.
Velkomin á vorönn SalsaIceland!
Dance Styles
Salsa (100%)
Organizer
S
