About this Event
LÝSTU UPP ÆSKUMINNINGARNAR
Dansað og málað með birtu og kærleik !
Eins dags vinnustofa til að uppgötva sköpunarkraftinn í gegnum þessar tvær gerðir lista, dans og málun. Við vinnum með minningar æskunnar og lýsum þær upp með heilun og sköpun.
Komið til okkar Álfheiðar og Mariu í Foldaskóla Logafold 1 í Grafarvogi þann 12. Apríl frá kl. 10:00-17:00 og gleðjist yfir því að geta dansað og málað ykkur inn í tilfinningaheim æskunnar og lýsa hana upp með birtu og kærleik.
Dansinn og málverkið eflast með samvinnu. Í dansinum uppgötvar þú lífsneistann djúpt í líkama þínum. Málverkið opnar gátt inn í undirmeðvitun þína með skilaboðum um tilfinningar og sjónræna upplifun. Með því að tvinna saman þekkingu og tilfinningar öðlast þú færni í að skapa með ferskri upplifun og djúpri tjáningu.
Að ná þessari færni er einstök upplifun. Málverkin þín verða einstök og dansinn verður til þess að flæðið eykst til muna. Það er dýrmætt að geta nýtt sér þessa þekkingu til að færa listsköpun þína á hærra plan.
Álfheiður Ólafsdóttir lauk prófi í grafískri hönnun frá Myndlista og handíðaskólanum árið 1990. Álfheiður byrjaði að mála með olíulitum 1997. Hún hefur alla sína tíð málað frá hjartanu og látið listina streyma í gegn um penslana. Álfheiður rak gallerí á Skólavörðustíg í nokkur ár og i framhaldi af því galleríið Articeland.is á vefnum.
Maria Edit Antal kennir Movement Medicine dans. Hún hefur stúderað ecstatic dance frá 2005. Ya'Acov og Susannah Darling Khan stofnaði skólann „School of Movement Medicine“ árið 2007 og Maria Edit hefur verið að nema þar síðan þá. Bakgrunnur hennar er í sjónrænum listum og hún er málari með BA gráðu úr islensku listaakademíunni.
Leiðbeinendur:
Álfheiður Ólafsdóttir, sími. 698-2919
Netfang: [email protected]
Maria Edit Antal, sími: 662-4799
netfang: [email protected]
Staðsetning: Foldaskóli Logafold 1. Grafarvogi.
Námskeiðið kostar 12.000 kr. Ef greitt er fyrir 5. April þá er verðið 10.000 kr.
Bankaupplýsingar: 331 26 5090
Kennitala: 220263-5689
Innifalið í verði eru öll verkfæri og efni til að vinna með. Ef vill þá er nemendum frjálst að koma með efnivið að heiman aukalega.
Dagskrá
Kl. 10:00-12:00 Movement Medicine
12:00-14:00 Málun
14:00-15:00 Hlé
15:00-17:00 Movement Medicine go málun
Hlökkum til að sjá ykkur
Álfheiður Ólafsdóttir og Maria Edit Antal
"This work counts as prerequisites for the Apprenticeship Programme and Professional Training with the School of Movement Medicine: www.schoolofmovementmedicine.com"
Dance Styles
Ecstatic Dance (100%)
Pricing
Early bird:ISK 10,000.00
Regular:ISK 12,000.00
Organizer
K
Kvika Föld Movement Medicine Dance Journeys
K
Kvika Föld Maria Antal
Á
