About this Event
(English below)
Salsa North heldur til Húsavíkur og býður upp á tveggja tíma pop up tíma í salsa fyrir byrjendur í samstarfi við Sigrúnu Björg SteinÞórsdóttur Zumbakennara á Húsavík.
Farið verður í grunnsporin, taktinn, einstaklings salsa og salsa í paradansi. Athugið að það er ekki nauðsynlegt að skrá sig í pari og hefð er fyrir því að skipta reglulega um dansfélaga á meðan á tímanum stendur. En vilji par frekar dansa eingöngu saman þá er það líka velkomið. Við leggjum áherslu á að skapa þægilegt andrúmsloft í tímunum þar sem undirstöðuatriðið er að allir skemmti sér vel. Kennslan fer fram á íslensku og/eða ensku eftir þörfum hópsins.
Salsa North hefur verið starfandi á Akureyri síðan í byrjun árs 2023 við góðar undirtektir. Námskeiðið kenna þær Arna Sif og Elísabet Ögn.
Um kennarana:
Arna Sif Þorgeirsdóttir hefur dansað frá unga aldri og lagt stund á salsa síðan 2016. Hefur einnig yfir áratuga reynslu af danskennslu og starfar einnig sem danskennari hjá Steps Dancecenter á Akureyri.
Elísabet Ögn Jóhannsdóttir stofnaði Salsa North í janúar 2023. Hún hefur bakgrunn í samkvæmisdansi og hefur lagt stund á salsa víðsvegar um heiminn síðan 2005 með hléum.
Skráning fer fram í gegnum Sigrúnu Björg í netfanginu: [email protected]
Staðsetning:
Íþróttahöllin á húsavík (stórigarður 8, 640 husavik) – speglasalur
Tímasetning: Laugardagurinn 25. Apríl kl. 13-15.
Verð: 8000 kr.
Við hlökkum til að taka vel á móti ykkur!
****
Salsa North is coming to Húsavík and offers a two-hour pop-up salsa class for beginners in collaboration with Sigrúnu Björg SteinÞórsdóttur, Zumba instructor in Húsavík.
The class will cover basic steps, rhythm, solo salsa, and partner salsa. Note that it is not necessary to register with a partner; it is customary to change partners regularly during the class. If a couple prefers to dance only with each other, that is also welcome. We emphasize creating a comfortable atmosphere where the main goal is for everyone to have fun. Instruction will be given in Icelandic and/or English depending on the group’s needs.
Salsa North has been active in Akureyri since early 2023 with a positive reception. The course instructors are Arna Sif and Elísabet Ögn.
About the instructors:
Arna Sif Þorgeirsdóttir has danced since childhood and has studied salsa since 2016. She also has decades of experience teaching dance and works as a dance teacher at Steps Dancecenter in Akureyri.
Elísabet Ögn Jóhannsdóttir founded Salsa North in January 2023. She has a background in ballroom dance and has studied salsa around the world since 2005, with occasional breaks.
Registration: through Sigrúnu Björg at [email protected]
Location:
Íþróttahöllin á Húsavík (Stórigarður 8, 640 Húsavík) – mirror studio
Date & Time: Saturday, April 25 — 13:00–15:00
Fee: 8,000 ISK
We look forward to welcoming you!
Dance Styles
Salsa (100%)
Organizer
S
Sigrún Björg SteinÞórsdóttir
S
SALSA NORTH
E
Elísabet Ögn Jóhannsdóttir
A
