About this Event

Kæru dansarar um allt land! Salsa North í samstarfi við Hótel Varmaland bjóða upp á sannkallaða danshátíð í maí! Um er að ræða salsa og bachata veislu alla helgina. Takið helgina frá og tryggið ykkur herbergi í gegnum netfangið [email protected] Tveggja manna herbergi er 25.800 kr. per nótt. Einstaklings herbergi er 22.800 kr. per nótt. (Ef teknar eru tvær nætur þá er 3000 kr. afsláttur af seinni nóttinni). Morgunmatur og aðgangur að heitum potti er innifalinn í verðinu. Til þess að tryggja sér tilboðið að ofan þarf að taka fram að bókað sé Salsa North tilboðið. Við mælum með að tryggja sér herbergi sem allra fyrst og lofum skemmtilegri stemningu og frábærum félagsskap í fallegri náttúru í hjarta Borgarfjarðar. Bachata & Salsa Social/danskvöld verður bæði kvöldin milli kl. 21-01. Við spilum 50/50 salsa og bachata. Danskvöldin eru ókeypis fyrir gesti hótelsins og/eða veitingastaðarins. Fyrir þau sem vilja eingöngu koma og dansa þá kostar það 2.000 kr. og greitt er á barnum. Veitingastaðurinn Calor á Hótel Varmalandi tekur vel á móti svöngum dönsurum. Opið er fyrir kvöldverð bæði kvöldin milli 18.30-21.00. Á föstudagskvöldinu verður a la carte seðill í boði og á laugardagskvöldinu verður suðrænt hlaðborð í boði á 9.900 kr. á mann. Borðapantanir fara fram í gegnum hótelið. Á laugardeginum verður spennandi workshop með Mike & Ólöfu. Dagskrá: Kl. 13:00 - Bachata musicality Kl. 14:00 - Bachata sensual Stutt hlé Kl. 15:20 - LA Salsa Verð fyrir alla tímana er 9.000 kr. Skráning fer fram hér: https://forms.gle/2mY37bBZyfB8VtGk6 Pottar og gufa eru opin milli kl. 10-22. Hægt er að snæða hádegisverð á laugardeginum milli kl. 11.30-14.30. Suðrænir kokteilar verða fáanlegir á barnum og hægt verður að versla drykki til að minnsta kosti 01.00. Morgunverður er í boði milli kl. 7-10. Á sunnudeginum er hægt að uppfæra úr morgunmat í bröns og late checkout kl 15.00 í stað kl 11.00 fyrir 5.000 kr. á mann. Hótel Varmaland er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel í Borgarfirði. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu þeirra www.hotelvarmaland.is Við hlökkum til að eiga ógleymanlega helgi saman :)

Dance Styles

Bachata (50%)
Salsa (50%)

Pricing

Social dancing for non-hotel guests:ISK 2,000.00
Discount for second night:ISK 3,000.00
Late checkout on Sunday:ISK 5,000.00
Workshop with Mike & Ólöfu:ISK 9,000.00
Saturday night buffet:ISK 9,900.00
Single room per night:ISK 22,800.00
Two-person room per night:ISK 25,800.00

Organizer

M

Mike Salsanchez

S

SALSA NORTH

E

Elísabet Ögn Jóhannsdóttir

H

Hótel Varmaland

Ó

Ólöf Agnes Arnardóttir

A

Arna Sif Þorgeirsdóttir