About this Event
Ævintýra “dansferð“ með Önnu og Frikka hjá DANS og KÚLTÚR. Dans, gleði og frábært fólk.
20. -28. september
Fararstjórar: Anna Claessen, Friðrik Agni Árnason og Sigrún Kjartansdóttir. Þau eru öll með margra ára reynslu sem Zumbakennarar, samkvæmisdansarar og einnig Jallabina Workout kennarar sem er arabískt dansfitness. Þau hafa búið og starfað víðsvegar um heiminn og tekið þátt í fjölda stórviðburða.
Dæmi um dagskrá:
Morgunleikfimi og morgunhugvekja með núvitundarhugleiðslu og slökun
Morgunmatur
Dansæfing
Frjáls tími og hádegismatur. Sólbað, ganga á ströndinni eða nágrenninu, SPA-ið heimsótt, hvíld og afslöppun í garðinum eða ströndinni.
Dansæfing
Kvöldmatur
Þátttaka í allri dagskrá er valfrjáls.
Á laugardeginum verður farið í dagsferð með rútu til Barcelona. Frjáls dagskrá í borginni – hægt að skoða borgina á eigin vegum eða hoppað upp í sightseeing bus, verslað og andað að sér menningu og lífi borgarinnar. Íbúar Barcelona eru að fagna LA MERCE hátíðinni svo það verður mikið mannlíf og skemmtun. Sameiginlegur kvöldverður með hópnum, jafnvel danssýning og rútuferð heim.
Verð
Ferðin kostar 139.900 kr. á mann miðað við tvo saman í herbergi. Innifalið er flug með WOW air, ein 20 kg innrituð taska á mann, gisting í Cambrils Park með fullu fæði í sjö nætur, rúta milli flugvallar og hótels og fararstjórn. Einnig verður farið í menningarerð til Barcelona laugardaginn 24. september og fylgir rúta með í þeirri ferð.
Flugferðin
Flogið er með WOW air til Barcelona. Brottför frá Íslandi er 20. september kl. 18:05 og lent kl. 00:30 að staðartíma. Flugferðin heim er aðfararnótt fimmtudagsins 28. sept. kl. 01:20 og lent heima kl. 04:10.
Hótel
Gist er á frábæru hóteli sem heitir Cambrils Park Resort og er staðsett í Cambrils sem er í rúmlega klukkutíma akstri frá Barcelona. Þetta er afskaplega skemmtilegt hótel staðsett stutt frá strönd en hefur þó sinn eigin sundlaugagarð, gerviströnd og margt fleira. Íbúðirnar sem gist er í eru veglegar, og þægilegar og mjög flott æfingaaðstaða er á hótelinu ásamt góðu Spa.
Farangursheimild
Innifalin í verði er ein 20kg. ferðataska auk bakpoka skv. skilmálum WOW air. Við hvetjum alla farþega að kynna sér þessa skilmála nánar hér, https://wowair.is/ferdaupplysingar/aukathjonusta/.
Kortalán / Netgíró
Kortalán Valitors gerir Gaman Ferðum kleift að bjóða korthöfum einfalda og örugga greiðsludreifingu við kaup á ferðum hjá okkur. Greiðsluskipting vegna ferðakaupa getur verið í 3 til 12 mánuði og eru vextir breytilegir. Hámarksheimildir miðast við úttektarheimild, skuldastöðu, aldur og viðskiptasögu korthafa. Hafðu samband í síma 560-2000 eða sendu póst á [email protected] ef þú hefur áhuga á því borga ferðina með kortaláni eða með Netgíró.
Dance Styles
Salsa (100%)
Organizer
A
Anna Claessen
F
Friðrik Agni Árnason
F
Friðrik Agni
H
Happy Studio
S
